13.10.2009 | 20:26
oink oink sagði svínið
jæja gott fólk, þá er komið að því að blogga
Erum búin að skreppa suður síðan seinast og áður en við gerðum þá þá trúlofuðum við okkur. vinkona mín smíðaðu gullfallega silfur hringa fyrir okkur.
Fórum á sannleikann með Pétri Jóhanni og var hann bara nokkuð góður, en hefði getað verið betri, gæti verið að við höfum farið með of miklar væntingar. Svo er það að frétta að það er líklegt að ég sé með svínaflensuna en það er ekki staðfest tilfelli því að það er hætt að taka syni nema að maður fari inn á sjúkrahús. Bettý okkar stækar og dafnar vel hjá okkur, við höldum nú samt að hún verði ekki mikið stærri nema þá á þverveginn því að það líður að því að hún verði geld. Allir aðrir hafa það bara gott. Báðir foreldrar okkar þ.a.s 
svín eru fín jabb jabb jabb
Barbarelli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2009 | 22:38
Veit veit of langt síðan seinast
Jæja góðir hálsar, þá er komið að því að setja inn nokkrar fréttir af okkur.
Mikið vatn er runnið til sjávar síðan seinast og man ég ekki helminginn af því sem hefur skeð hjá okkur og verður það jafnvel ekki í tímaröð hjá mér
en þá hefst það ...... erum bæði búin í sumarfríi og var það bara mjög góður tími þótt að við hefur eytt því í sitthvoru lagi
Ég er byrjuð að fara í ræktina 3x í viku og er að standa mig ágætlega, var svo heppin að bróðir minn kom til landsins í 4 vikur og tók mig í smá kennslu í tækjasalnum og hvað ég gæti gert í eldhúsinu og hvernig ég gæti skipt hlutum út sem eru óhollari yfir í hollari kost. Elli er alltaf að æfa og var hann tekinn í gegn af Erlingi þessar 4 vikur. Dýrið okkar hún Bettý dafnar alveg æðislega og er algjör andstæðan við Dexter sem var náttúrulega bara klikk greyið. Gerðum góðverk og máluðum íbúðina hjá foreldrum Ella og eru þau alveg í skýjunum yfir breytingunum(set jafnvel myndir seinna) Skruppum til reykjavíkur eina nótt áður en við fórum á ættarmót hjá mér og á meðan við vorum þar þá fæddist ein lítil stelpa sem vinkona mín á og náði ég ekki að sjá hana
áður en við fórum í Borgarfjörðinn á ættarmótið, þar var margt um manninn og skemmtu allir sér konunglega og verður annar hittingur eftir 5-7 ár (man ekki alveg) Erum búin að búa saman í eitt ár núna í júlí og einnig búin að vera saman í 3ár(þótt að það virðist vera lengur)
Allt of löt að blogga
Barbarelli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2009 | 19:18
Betra seint en aldrei
Loksins loksins... Jæja þá er komið að fréttum, ég er loksins byrjuð að vinna aftur eftir 4.viku fjarveru útaf brotnum rassi (tókst að brjóta spjaldhrygginn) það var alveg yndislegt að komast út aftur. Svo er næst á dagskrá að koma sér í ræktina aftur eftir alltof langa fjarveru, Elli er alltaf á fullu í ræktinni og er enn á ný kominn með nýtt æfingar prógram hjá Erlingi. Mútta og pabbi stungu af úr bænum yfir páskana og hún Rósa okkar kom norður með litlu skutlurnar sínar og er búið að vera stuð í gilinu. Við urðum að svæfa hann Dexter okkar vegna ofvirkni í honum og vegna þess að hann var farinn að bíta full fast og full oft
Erum nú komin með annan kött, núna læðu sem við ætluðum að taka eftir 2 vikur því að húnn er ekki orðin 8. vikna en hún dafnar vel hjá okkur og gengur það bara vel, hún er algjör andstæða við Dexter og fékk hún nafnið Bettý. Um næstu helgi er svo ICE cup hjá Ella, það er stærsta mótið í krulluni á tímabilinu og reyni ég að koma með gengi hans liðs þegar þau eru kunn. Svo lenti ég í þeirri skemmtilegri reynslu að vinkona mín hringdi og sagðist ætla að koma og prófa gallann hans Ella og var það í góðu lagi og þegar ég fór til dyra og opnaði þá fékk ég eitt mesta sjokk sem ég hef fengið í MJÖG langan tíma, því að þar stóð vinkona mín sem á heima í Canada og ætlaði að koma hingað í Maí, svo þegar ég var orðin aðeins róleg þá fórum við til Elfu vinkonu og gáfum henni sjokk. svo að það er djamm framundan hjá mér.
kveðja úr Borgarhlíðinni...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2009 | 19:45
Klaufar að klaufast
Þá er Mars gengin í garð með öllu sínu veldi. Ekki byrjaði hann vel hjá mér, var aðeins að kljást við hann Ella og endaði á gólfinu á rassinum, fór svo upp á sjúkrahús og var mér sagt þar eftir skoðun og rönkenmyndir að ég væri óbrotin og væri líklega bara tognuð.... já einmitt, fékk svo símhringingu í dag(4.mars) og þá vilja þeir fá mig í sneiðmyndatöku því að þeir eru ekki vissir um hvort ég sé brotin eða ekki.. En að allt öðru litli kallinn minn er orðinn 5.mánaða og er hann orðinn vel stór. Elli er allur í krullunni og gengur það bara vel, svo var hann líka í keilu en það gekk ekki alveg eins vel. Elli er farinn að vinna stundum um helgar á gámasvæðinu og er skrítið að vera líka einn um helgar og sækja hann í vinnuna þá líka, en við duttum í lukkupottinn einu sinni þegar Elli var að vinna á gámasvæðinu og þar kom inn lazyboy sófi sem svona smell passaði inn hjá okkur bæði stærð og litur.... Svo líður að því að ég verð gömul, eða svoleiðis, verð í mars 25 ára og svo í endaðan mars þá er komið ár síðan ég hætti að reykja og er ég HRIKALEGA stolt af því.
P.s fékk út úr sneiðmyndatökunni og er brotin og það er okki rófubeinið heldur spjaldhryggurinn.
kv. klaufarnir í Borgarhlíðinni
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.2.2009 | 22:30
tíminn líður hratt
þá er fyrsta mánuðurinn búinn og númer tvö er tekinn við. Guð hvað tíminn líður hratt. Það er allt gott af okkur að frétta. Elli hefur alltaf jafn mikið að gera og er hann búinn að bæta keilu inn í líka. Hafa þeir keft einn leik og tóku þeir fyrsta sætið í liða keppninni. Ég er farinn að reyna að fara allavega út af heimilinu eitt kvöld í viku, er orðin aðeins of heima kær og er það bara gott að komast aðeins frá .Hann Dexter stækkar og stækkar og er orðin nokkuð stór okkur grunar nú samt að hann verði ekki mikið stærri. Skuggi okkar kemur stundum í heimsókn og það er æðislegt að sjá hvernig litla skottið bregst við þegar hann kemur. svo kom vinkona mín í heimsókn hún Arabía og Dexter var snælduvitlaus, hann var ekkert hræddur við hana eins og Skugga hann stökk bara á hana. Við urðum svo heppin á eignast málverk eftir hana föðursystir mín og prýðir það nú stofunna okkar. Af foreldrum okkar er allt gott að frétta og hafa þau það bara fínt, pabba minn er reyndar að fara að vinna á suðurlandi og er ekki alveg vitað hvað hann verður lengi.
Ljúft er lífið í faðmi ástvina
Barbarelli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2009 | 22:20
Nýtt ár með nýjum tækifærum og nýjum vonum...
Hæ hæ viljum byrja á að óska öllum gleðilegs nýs árs og farsældar á nýju ári. Jólin voru mjög góð hjá okkur, það var borðað mikið og vorum við í faðmi fjölskyldunnar, fengum svo margar fallegar gjafir og takk fyrir okkur. Ég fékk auðvitað Myrká eftir Arnald frá honum Ella og hann fékk veski og ekta baseball húfu frá mér. Svo fengum við Glerskáp og náttborð. rúmföt og útsaumaða mynd sem er algjört æði og prýðir forstofuna því að það stendur velkomin á henni og fengum líka æðislega kertastjaka. Svo fékk Elli bol og skrjúfjárnasett og lyftingarbönd úr leðri og ég fékk leðurhanska og náttbuxur og æðislega hettupeysu. Fengum æðislegan kalkún að borða á aðfangadag og fengum svo hamborgarahrygg á gamlárskvöld. Við reyndar byrjuðum árið ekkert sérlega vel erum bæði veik og urðum það eiginlega strax 1.Jan.
vonandi sjáumst við hress á nýju ári
kveðja Barbara og Elli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2008 | 23:02
Gull var það heillin.
Jæja þá styttist í jólin og er allt að smella hjá okkur. Elli var bikarmeistari í Krullu 2008 og er það þeirra besti árangur til þess og erfitt að toppa það. Við fengum okkur kisa um daginn og fékk hann nafnið Dexter eftir miklar vangaveltur og tilraunir með nöfn, hann er bröndóttur högni og er mikill orkubolti. Geymslan okkar er tilbúin, búið að mála og lakka gólfið en hillurnar vantar en þær koma við tækifæri, erum allavega búin að losna við dótið úr íbúðinni sem átti ekki að vera þar og erum búin að taka dót hjá tengdó sem Elli átti þar og er mera eftir. jólagjafirnar eru allar að klárast eigum bara tvær eftir og auðvitað til hvors annars. erum búin að skreyta smá en klárum örugglega um næstu helgi og svo er það auðvitað jólatréð sem verður skreytt á Þorlák, þótt við séum bæði að vinna, kvöldið verður tekið í það, það er nú ekki svo stórt að það taki langan tíma.
Hóhóhó
Barbarelli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.11.2008 | 22:26
Kátt á hjalla
Við erum ennþá að koma okkur almennilega fyrir, eða réttara sagt gera fínt, geymslan er að klárast svo að kassarnir eru að fara fljótlega í hana. Er búin að setja upp gardínur þar sem þær eiga að fara og er ég mjög ánægð með það, á samt eftir að velja gardínur því að hef fengið í láni því að ég hef ekkert fundið sem mér líkar. Fengum okkur hillu í stofuna svo að við getum sett bækurnar okkar og jafnvel DVD diska safnið okkar sem er örugglega um 100diskar ((hef ekki talið svo þeir gætu verið færri)eða fleiri) og duttum við þar aldeilis í lukkupottinn, hún (hillan)átti að kosta 16.990kr en var lækkuð niður í 14.990kr en þegar Elli fór og ætlaði að kaupa þá fékk hann að vita að þetta væri sú seinasta í þessum lit og við fengum hana á 9.990kr því að þetta væri sýningar eintak. Var reyndar svo óheppin að ég veiktist í enda seinustu viku og var frá í nokkra daga, en er öll að hressast. Svo er ég að fara til RVK og planið er að hitta vini og fjölskyldu og hafa gaman, veit að vinur minn ætlar að far með okkur Rósu í leikhús og út að borða, veit ekki hvað verður séð eða hvert verður farið að borða, kannski verður líka farið í búðir, er farin að langa að kaupa smá jóladót, er vel pössuð hérna ef ég fer í búðir með Ella. Annars er bara allt gott að frétta af okkur og okkar famelíum.
Lifðu lífinu lifandi og njóttu þess að vera á lífi.
Barbarelli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2008 | 18:57
Meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó........
Þá er farið að snjóa og ekkert smá, Elli er farinn að fara í vinnuna kl05:00 og er gott að ég get farið aftur að sofa þegar klukkan hans hringir
Galant var fastur á fimmtudaginn þegar ég ætlaði að fara í vinnuna, en sem betur fer gat pabbi bjargað mér og skutlað mér í vinnuna. Tókst samt að losa hann sjálf eftir vinnu, ekkert smá stolt af mér. En næst þegar við fjárfestum í farartæki verður það 4wd. Það eru bara 2 mánuðir til jóla og hlakka ég ekkert smá til að halda okkar fyrstu jól í okkar EIGIN íbúð. Og já ef einhver á litið gervijólatré og er hættur að nota það endilega sendið okkur það
stofan bíður ekki upp á stórt jólatré
svo lítið verður að duga
Það verður ekkert smá gaman að skreyta og græja og gera fyrir jólin, baka og finna jólagardínur.... jibbí. Er farin að vera aftur jólabarn og er ekkert smá ánægð með það. Elli er eins og venjulega alveg sama um þessa hátíð, eða nánast, ég má gera allt sem ég vil NEMA setja seríu í svefnherbergið.
Meira þegar nær líður jólum... Í jólaskapi (vonandi)
Barbarelli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.10.2008 | 17:46
betra seint en aldrei
jæja það er svo sannarlega farið að hausta og erum við komin í föðurlandið og er það hlítt og gott., erum meira segja komin með hlýrri rúmföt, erum ekki ennþá venjast því að hafa ekki gólfhita
Elli er komin á fullt í krullunni og eru þeir búnir að vinna tvo leiki
Erum ennþá að koma okkur ALVEG fyrir og það gengur bara mjög vel. Erum alveg að klára geymsluna okkar svo að við losnum fljótlega við kassa sem eru fullir af dóti sem á að geyma og getur losað tengdó við slatta af dóti sem Elli á hjá henni..... Er að reyna að elda meira handa okkur frekar en að borða bara núðlur og eitthvað rusl og gengur það bara ágætlega..... held ég
spyrjið Ella frekar um það... Er búin að baka handa okkur Ella tvisvar núna og er að spá hvað ég eigi að gera næst, bróðir minn er nú búinn að panta súkkulaðiköku þegar hann kemur heim um jólin og verð ég nú að standa við það, vera góð systir. hef aðeins verið að kaupa inn fyrir heimilið og gera það flott, svo fengum við frá tengdó ofboðslega fallega mynd sem hún saumaði af seinustu kvöldmáltíðinni. Er orðin brúnhærð aftur eftir langt rauðhært tímabil
við fengum að sjá hana Rósu okkar og eining hann Ása það var reyndar ekkert skemmtilegt tilefni sem við hittumst við, þau komu norður til að fara á jarðaför, systir tengdapabba lést og við fórum öll á jarðaförina. Hún var ekkert smá falleg og var hellingur af blómum enda var konan með græna fingur....Vonandi verða fleiri fréttir næst þegar ég læt heyra frá okkur og vonandi verður ekki svona langt á milli....
Þegar er fljúgandi hálka mundu að horfa upp... hahahaha
Barbarelli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)



audda






